Trúboðar
    <language>is</language>
Sumarferð á Ísafjörð
      <description>Sumarferð Trúboða verður 24.-25. júlí og verður farið á Ísafjörð. Laggt verður af stað snemma á laugardagsmorgni og koið heim á sunnudagskvöldi. Vinsamlega skráið ykkur í ferðina með því að setja nafnið ykkar inn undir álit ...</description>
Æfing og grill
      <description>Kæru félagarÍ tilefni þess að þann 10. maí varða klúbburinn fjögura ára þá verður "Æfing og Grill" sunnudaginn 16. maí. Nánar hefur verið greint frá þessu í tölvupósti til félagsmanna og væri nú alveg frábært að þeir sem ætla að vera með skrái sig hér með því að láta álit sitt í ljós.</description>
01. maí 2010
      <description>Nú er framundan "Fyrsta maí" keyrslan 2010. Auglýsing er komin á forsíðuna og hægt að skoða þar hvernig keyrslunni verður háttað. Við munum koma saman við EKRON kl.09.00 og síðan aka saman niður á Laugarveg. Láttu endilega vita ef þú ætlar að taka þátt, með því að tjá álit þitt hér á blogginu. Gaman væri að sjá sem allra flesta af félögunum mæta.</description>
Heimsókn í Keflavík
      <description>Nú er komið að heimsókn í Keflavík, 30. apríl 2010. Laggt af stað frá N1 við Lækinn í Hafnarfirði kl.19.00Láttu vita um komu þína með því að skrá þig undir liðnum álit....</description>
Vinnustaðafundur 28. apríl í Álverið
      <description>Já, nú er komið að næstu vinnustaðaheimsókn hjá okkur og hefur Freddi skipulagt heimsókn í Álverið í Straumsvík og síðan heimsókn til Glacier Car Rental á eftir í Pizzu.Nú þurfa menn að láta vita hvort þeir koma og er það gert eins og undanfarið með því að láta álit sitt í ljós hér á blogginu. Koma svo....</description>
Sumardagurinn fyrsti 2010
      <description>Nú er framundan fyrsta skipulagða keyrslan okkar á árinu 2010. Hefðbundin keyrsla á "sumardaginn fyrsta". Láttu endilega vita ef þú ætlar að taka þátt, með því að tjá álit þitt hér á blogginu. Gaman væri að sjá sem allra flesta af félögunum mæta. Ef þú átt ekki hjól þá er tilvalið að fylgjast með hvaðan hópkeyrslan hefst og síðan að koma niður í Fíladelfíu milli 16.00 og 17.00 þar sem árlegir Mótorhjólatónleikar verða.</description>
Vinnustaðaheimsóks í boði Massda
      <description>Nú er okkur boðið í heimsókn í vinnuna hjá MASSDA og verðum við að vita hverjir koma vegna skráningar hjá vinnuveitanda hans. Þess vegna er mikilvægt að skrá sig hér, nafn og hvort þú kemur eða ekki.Það gerir þú með því að smella á valmöguleikann að segja álit þitt.</description>
Gæslan á Kotmóti 2009
      <description>Nú er að líða að Kotmóti 2009 og þá þurfum við að mannavaktirnar okkar við GÆSLUNA eins og við höfum gert með miklumsóma undanfarin ár.Gott væri að þið létuð vita með því að fara í bæta við áliti og láta þannigvita hvort þið verðið með.Það er mikilvægt að heyra sem fyrst hverjir geta verið með þannig að viðgetum sett saman vaktirnar í tíma. Koma svo og vera með</description>
Dagsferð vestur í Reykhólasveit
      <description>Næstkomandi laugardag, 18. júlí er komið að því að við förum í Dagsferð í Reykhólasveit.Mæting er kl.8.30 í Ekron en haldið verður af stað kl.9.00Ekið verður sem leið liggur um Hvalfjarðargöng vestur gegnum Borgarnes og Búðardal.Það er engin spurning að þetta verður frábær dagur hjá okkur og hvetjum við alla til að taka með sér sundföt þar sem til stendur að fara í sund á Reykhólum.Nú er bara að melda sig hér á blogginu þannig að við vitum hverjir hafa hugsað sér að koma með.</description>
K-in þrjú ...
      <description>Kæru félagar!Hjartans þakkir fyrir frábæra ferð og yndislega samveru í Trúboð(a)s ferð okkar til Akureyrar. Ég og örugglega fleiri voru búnir að hlakka mikið til þessarar stundar. Það er kannski erfitt að útskýra nákvæmlega hvað tilhlökkunin gengur út á, en það fer í gang einhver spennandi eftirvænting að hitta félaga?, að fara að hjóla?, að takast á við veðrið?, að takast á við óvæntar kringumstæður, að fá að segja frá því sem liggur á hjartanu??????. Loxins er stundin komin og ferðabænin búin og fákarnir roknir af stað! Sumir eru undirbúnir í að gera eitthvað, aðrir bara tilbúnir í slaginn og einhverjir eru með áhugamál sem þeir eru til í að ræða hvar og hvenær sem er........... Nú sem fyrr kom að því að við þurftum að standa keik gagnvart gestum okkar og útskýra hvað við stöndum fyrir í raun og veru og staðfesta bæði í orði og verki að við erum ekki bara einhverjir mótorhjólatöffarar að sunnan. Við lentum í raun ítrekað í slíkum kringumstæðum að við þurftum að útskýra af hverju við vorum komnir. Strax á laugardagskvöldið og síðan á sunnudeginum var nokkrum okkar kippt upp í ræðupúltið til að segja frá tilveru okkar og tilgangi. Síðar á laugardagskvöldinu kynntumst við yndislegum manni tók á móti okkur eins og fjölskyldu sinni, en sem byggir trú sína á mótorhjólum. Á sunnudagsmorgni ferðuðumst við um Eyjafjarðarsveitir með frábæru fólki sem umgekkst okkur eins og vini til margra ára. Eftir hádegi á sunnudag áttum við stórkostlega samverustund með systkinum okkar á Akureyri sem tóku á móti okkur eins og týnda syninum. Við svona kringumstæður er mjög mikilvægt að við sem hópur sínum á einfaldan hátt að við erum öðru vísi en aðrir Bikerar. Hvað er það þá sem við getum staðið saman að ekki bara þegar við erum í gallanum; heldur einnig án hans. Á heimleiðinni gafst góður tími til umhugsunar. Í huganum dáðist ég fyrst og fremst af því hvað svona stór og myndarlegur hópur dró að sér mikla athygli og fyrirspurnir og var ávallt til mikillar fyrirmyndar. Við t.d. vorum alltaf sérstaklega dugleg heilsa og kynna okkur með nafni. Allavega þegar atburðirnir rúlluðust upp í huganum, þá sá ég hvernig við vorum með lifandi og spennandi boðskap sem einkenndist einfaldlega af þremur K-um sem standa fyrir Kristni, Kurteisi og Kærleika. Bara þetta gerir okkur sérstök og spennandi hvar sem er og hvenær sem er. Þá vil ég enn og aftur beina sérstöku þakklæti til félaga okkar fyrir norðan með von um meira umgengi og fleiri hjólaferðir.Guð blessi ykkur,Doktorinn</description>
Hjólaferð 31. maí 2008
Hljóðnar á Ingólfstorgi ?
      <description>Komið hafa fjölmargar kvartanir til lögreglu og Reykjavíkurborgar  frá miðbæjarbúum og verslunareigendum vegna hávaða í bifhjólum. Það eru því tilmæli frá lögreglu til okkar bifhjólafólks að róa aðeins inngjöfina í kringum Ingólfstorgið, að öðrum kosti ætla borgaryfirvöld að loka torginu þannig að ekki verði hægt að leggja bifhjólum á því.Það er okkur í hag að vinna með en ekki á móti. </description>
Mótorhjólamessa 12. maí 2008
      <description>Mótorhjólamessa Annan í hvítasunnumánudaginn 12. maí kl. 20.00Mótorhjólamessa í samstarfi þjóðkirkjusafnaða og Hvítasunnukirkjunnar. Flestir mótorhjólaklúbbar munu eiga fulltrúa í messunni með þátttöku sinni.Prestar:Sr. Gunnar Sigurjónsson, Snigill og IFMR.Sr. Íris Kristjánsdóttir, Snigill og Skutla.Vörður Leví Traustason, forstöðumaður Hvítasunnukirkjunni, Trúboði.Jón Þór Eyjólfsson, aðstoðarpastor Fíladelfíu, Snigill og Trúboði.Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina ásamt Meme-group sem er gospelkór unglingastarfsins í Digraneskirkju.Allt áhugafólk um mótorhjól og umferðarmenningu er velkomið í messuna. Mótorhjól verða til sýnis fyrir utan kirkjuna og nokkur verða til sýnis í anddyrinu. Leðurklæðnaður og annar öryggisbúnaður á mótorhjólum er viðeigandi messuklæðnaður.Sr. Gunnars, Kraftaklerkur  </description>
Skyndihjálparnámskeið fyrir bifhjólafólk.
      <description>Götuhjóladeild Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar (RR-AÍH) mun halda skyndihjálparnámskeið fyrir bifhjólafólk dagana 21. og 22. apríl n.k.Námskeiðið er sérsniðið að þörfum bifhjólafólks, sem oftar en ekki er fyrst á slysstað þegar bifhjól á í hlut. Farið verður yfir helstu meiðsli sem bifhjólafólk getur fengið t.d. við það að falla af bifhjóli eða þegar bifreið er ekið á það. Leiðbeinandinn hefur reynslu á þessu sviði og ætti enginn bifhjólamaður að láta þetta fara framhjá sér nú í upphafi tímabils."Námskeið sem þetta getur skipt sköpum og skilið á milli feigs og ófeigs!"Hafnarfjarðardeild Rauða Kross Íslands sér um kennslu og fer námskeiðið fram að Strandgötu 24 Hafnarfirði. Gengið er inn Fjarðargötumegin á milli Dominos og Fjarðar. Námskeiðið er samtals 8 tímar, 4 tímar hvort kvöld og hefst kl. 19.00 og stendur til 22.00. Þátttökufjöldi miðast við 20 manns en ef þátttaka er meiri verður haldið annað námskeið síðar.Skráðir meðlimir í RR-AÍH sem hafa greitt félagsgjöld fyrir árið 2008 greiða 2.500 kr fyrir námskeiðið. Aðrir greiða 5.000 kr. Hægt er að skrá sig í RR-AÍH og greiða 4.000 kr. árgjald og fá þá námskeiðið á 2.500 kr. Upplýsingar um greiðslu eru á skráningarsíðunni.Sem flestir eru hvattir til að mæta og taka þátt í því að gera bifhjólamennskuna öruggari.Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst til stjórnar RR-AÍH á netfangið stjorn@road-race.netSmelltu hér til að skrá þighttp://www.road-race.net/skyndihjalp.aspx</description>
Fundur 02. apríl 2008
      <description>Dagskrá félagsfundar miðvikudaginn 2. apríl 20081.    Fundur settur2.    Kosning fundarstjóra og fundarritara.3.    Fundargerð síðasta fundar borin upp.4.    Staða Biker Biblíu5.    Kynna fyrirhugaða dagskrá Sumardagsins fyrsta6.    Önnur mál.7.    Fundi slitið</description>
Yfirlýsing
      <description>Trúboðar, samtök kristinna bifhjólamanna fordæma háskaakstur hvort sem er innanbæjar eða á þjóðvegum lansins.  Hvetjum við ökumenn til að sýna ábyrgð í umferðinni, fara að gildandi lögum og virða stöðvunarmerki lögreglu.Reglan er:"Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra."Jafnframt hörmum við slysið sem varð á Breiðholtsbrautinni og vonum að aðrir ökumenn geti lært af þeim mistökum sem þar áttu sér stað.</description>
Laugardagurinn 19. maí 2007
      <description> Kæru félagar og vinir! Dagurinn í gær, laugardagurinn 19. maí 2007,  verður lengi í minnum hafður, ekki bara okkar, heldur óteljandi annarra sem urðu vitni að fegurð hans, gleði og fullkomleika. Í minningunni verður kuldinn snemma um morguninn bara hlýr og vindurinn um daginn sem blíður andvari. Eftirvæntingin sem skein úr andlitum bæði okkar og gestanna okkar er augljós á myndum sem teknar voru á bílastæðinu fyrir framan Össur. Einn bróðir sagði; "Halldór ég titra af spenningi". Þó keyrslan upp á Þingvöll hafi verið "róleg" þá var fyrirfram ákveðið að hún skyldi vera hæg til að þjappa okkur öllum saman. Þegar við héldum svo meðfram Þingvallavatni varð ég þess áskynja að hraðinn hefði aukist því bakhjarl minn gaf mér merki í báðar síður og að lokum í hjálminn. Það var því gott jafnvægi í hópnum niður að Selfossi. Eftir það fór umferð og vindur að hafa áhrif svo um munaði. Eitt sinn þegar ég leit í hægri spegilinn og sá manneskju á miðjum veginum varð mér brugðið og leit því snögglega í þann vinstri. Ég sá þá að bakhjarl minn var á sínum stað og hélt því ótrauður áfram niður að Litlu Kaffistofunni. Þegar þangað kom vantaði greinlega einn í hóp okkar. Þar sem hann var ekki með neinn gest og þekktur fyrir trygglyndi við hópinn var talið öruggt að hann skilaði sér aftur og því var haldið áfram á byrjunarreit á bílastæðið við Össur. Þar var mikil gleðistund þegar allir skiluðu sér aftur, óskaddaðir á líkama og greinilega sterkari andlega. Framhald dagsins varð einnig eins og fallegasti draumur. Það að geta stillt upp 14 hjólum undir 20° horni með 23.5cm millibili og 4.7cm aftar en fyrra hjól, miðað við að fyrstu hjól væru með 52.3cm milli sín og í 2.72m fjarlægð frá hjóli Pastorsins, sem var fyrst í miðlínu, geta bara Trúboðar gert. Skiljanlega varð athöfnin þar á eftir algjörlega fullkomin sem og blessunin. Miðað við að fá kók og Prinz póló í morgunkaffi, fiskiréttarsúpu í hádegismat og pizzubita í kvöldkaffi þá var veislumaturinn algjör snilld. Fallegri dag er ekki hægt að hugsa sér. Hvort hans verður minnst sem fyrstu fjallaferð Trúboða, styrktarferð Lindarinnar, mótorhjólaheimsókn til Omega, brúðkaups- og blessunardagur Ámunda og Dóru, dagurinn eftir afmælið hans Ámunda, afmælisdagur formannsins eða afmælisdagurinn hans Halldórs, þá var þessi dagur FULLKOMINN. Ég þakka ykkur öllum fyrir að gera þennan dag svo mörgum eftirminnilegan. Guð blessi ykkur! Doktorinn #3  </description>
Hjólasýning á Akureyri.
      <description>08. maí 2007 Kæru félagar.Þann 16. júní næstkomandi er ætlunin að halda mótorhjólasýningu á Akureyri.Sýningin verður haldin í minningu Heidda og er henni ætlað að vera fjáröflun til styrktar safninu sem unnið er að þessa dagana. Ekki man ég til þess að haldin hafi verið alvöru hjólasýning á Akureyri áður, en gegnum tíðina höfum við sýnt hjólin okkar á bílasýningu BA á 17. júní og verður svo áfram. Sýningin 16. júní er haldin með fullu samráði við BA.Toyota á Akureyri mun lána okkur húsið sitt í þetta og er það eitt glæsilegasta sýningarhús bæjarins. Ýmsar uppákomur verða á sýningunni, og ef einhver er með hugmyndir er það vel þegið.Er það von okkar að hjólafólk um allt land taki vel í þetta og mæti á sýninguna, og einnig að fólk láni hjól á sýninguna.Til mikils er að vinna að koma til Akureyrar þessa helgi og verður mikið að gerast í bænum, þar má nefna Hjólasýninguna, bílasýninguna, burnout, míla, endurokeppni og margt fleira.Einnig á ég von á að Tían geri eitthvað sniðugt í tilefni dagsins.Þeir sem áhuga hafa á að sýna hjólin sín eru beðnir að skrá hjólinn á netfangið joi@ic.isFram þurfa að koma allar uppl um hjólið og eiganda ( ekki er verra ef mynd og einhver saga hjólsinns fylgi ef til er). Það er takmarkað pláss, en við erum að leita eftir allavega hjólum, bæði nýjum og gömlum, þess vegna er um að gera að skrá hjólið svo við getum valið vel. Öllum sem skrá hjólin sín verður svarað eins fljótt og hægt er.F.h. safnanefndarJói Rækja # 234Tía # 1S: 8663500</description>
Fjáröflun fyrir Lindina FM102.9
      <description>Kæru félagar!  Ég þakka ykkur hjartanlega fyrir ánægjulegar ferðir að undanförnu. Nú er að koma að næsta verkefni okkar, sem er fjáröflun fyrir Lindina. Hugmyndin er að hjóla frá bílastæðinu framan við Össur hf á Grjóthálsi 5 um 10-leytið laugardaginn 19. maí. Farið verður upp Mosfellsdal á Þingvöll; meðfram vatninu og niður að Ljósavatnsskóla þar sem Omega sjónvarpsstöðin verður skoðuð. Síðan haldið til Selfoss, skoðað nýtt samkomuhús og svo farið á  Eyrarbakka og borðað í Rauða húsinu. Að lokum farið heim gegnum Þrengslin og endað aftur á bílaplaniu við Össur. Þetta er nokkuð löng leið en einföld allan tímann. Á listanum okkar eru 12 manns sem eru búin að kaupa sér far aftan á hjólin okkar. Ég vil hér með hvetja alla félagsmenn og vini þeirra til þess að koma með í þessa fyrstu trúboðsferð þar sem haldið er "til fjalla". Hins vegar verða þeir sem ætla að sér að reiða að treysta sér fullkomlega til þess. Ég tel að annaðhvort viti maður það hér og nú og geti því sent mér svar tilbaka um að þeir muni koma og ætli að reiða; ég tel það ekki nægilegt að æfa sig aðeins í næstu viku!!!!! Það væri því mikill fengur í því ef góðir vinir sem eru vanir að reiða vilja koma með og hjálpa til. Einnig væri mikill akkur í að þeir sem eiga aukaföt og hjálm til að lána gæfu sig fram. Við sjáumst sem flest á miðvikudaginn, þá gefst tækifæri til þess að leggja frekara orð í belg.  Guð blessi ykkur,    Doktorinn      </description>
Jólafundur 11. desember 2006
      <description>    Mánudaginn 11. desember var haldinn jólafundur og var góðmennt. Fundurinn var mjög góður og auðséð að fólk er komið í hátíðarskap. Sagt var frá skráningu merkis og nafns og síðan var heimasíðan kynnt og voru allir ánægðir með stöðu mála og auðséð að næsta ár verður "bara" skemmtilegt. Búið er að setja inn myndir frá fundinum á heimasíuna. Formaður og ritari hafa tekið að sér að láta sauma merki fyrir félagsmenn, barm- og bakmerki. Merkjunum verður síðan útdeilt til þeirra félagsmanna sem greitt hafa árgjaldið.Hér að ofan gefur að líta frábært Kawasaki Vulkan 1600 sem er í eigu Ámunda Tómassonar (málara).Ákveðið var að næsti fundur verði miðvikudaginn 10. janúar 2006 kl. 20.00. Bendum við á það að það er bænastund í Fíladelfíu þennan sama dag kl.19.00 og eru meðlimir hvattir til að mæta á hana.Stjórn Trúboða óskar meðlimum og velunnurum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári með þökk fyrir góðar samverustundir á árinu sem er að líða.</description>
Trubodar.com
      <description>    Til hamingju félagar.Nú erum við búnir að skrá og komnir í gang með okkar eigin heimasíðu á okkar eigin svæði. Svæðið er www.trubodar.com.Nú er líka farið að styttast í jólafundinn hjá okkur þann 11. desember kl.20.00.Vonandi geta sem flestir mætt og verið með. Trúlega sendir nú formaðurinn út opinbert fundarboð.Það er mikið búið að vera að gerast hjá okkur og hefur formaðurinn m.a. verið að vinna í því að skrá nafnið og merkið okkar, þá hefur hann líka verið að vinna við það að ganga frá lögunum eftir að við fórum yfir þau á síðasta fundi og verða þau líklega tilbúin á jólafundinum.Hér að ofan gefur að líta hjólið hennar Susanne, flott Honda 750.Ég hlakka til að sjá ykkur sem flest á jólafundinum. Munum, "að svo elsaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf."</description>
Ánægja með viðbröggð manna.
      <description>    Það er frábært að sjá viðbröggð manna við því að greiða félagsgjaldið og sýnir það að menn hafa áhuga að þetta verði sem allra best hjá okkur.Það væri gaman að sjá hvað félagsmönnum finnst um að við notum okkur það að gera þessa heimasíðu að heimili okkar á Veraldarvefnum. Frábært hjá ykkur.Munið að skrá ykkur í gestabókina.</description>
Baráttufundur og táknræn athöfn
      <description>Á föstudaginn kemur verður baráttufundur og táknræn athöfn við Kögunarhól við Ingólfsfjall, sem er á milli Hveragerði og Selfoss. Þar fórust tveir mótorhjólamenn 1990, an þessi athöfn verður haldinn til að mótmæla víravegreiði á Hellisheiði og því að ekki sé byggður 2x2 vegur frá Reykjavík til Selfoss. Frá því 1973 hafa 52 látist í umferðarslysum á þessari leið og munu 52 þriggja metra háir krossar vera settir upp í minningu um þessa einstaklinga. Forstöðufólk athafnarinnar hafa óskað eftir því að mótorhjólafólk komi (á hjólum ef hægt er) og tökum þátt og sýnum þannig í verki að við erum á móti víravegreiði og viljum alvöru veg á þessari fjölförnu leið.Fundurinn verður föstudaginn 10. nóvember kl.15.00 á Kögunarhóli sem er 5 km frá Selfossi í átt að Hveragerði.Lesa meira....</description>
Heimasíða til reynslu
      <description>    Nú er komið að því. Það var rætt þegar við byrjuðum að hittast að koma upp heimasíðu fyrir klúbbinn okkar.Nú höfum við verið að hittast nokkuð vel og síðast fyrir viku síðan þá var tekin ákvörðun varðandi merki og nafn.Vona ég að við komum öll til með að njóta þess að koma saman og deila þessu áhugamáli okkar.Smátt og smátt munum við setja inn efni sem tengist starfsemi okkar og gera þetta sem áhugaverðast.Næsti fundur hefur verið ákveðinn 11. desember kl.20.00 og verður það jólafundur og eru meðlimir hvattir til að taka maka með sér. Dagskráin verður sett hér inn á síðuna, en til stendur að sýna DVD og eiga góða stund.Nú er komin alvara í málið og hvet ég þá sem eru ákveðnir í því að vera með að vera duglega að mæta.</description>